miðvikudagur, október 25, 2006

Lánað í svefni?

Það kom dáldið fyndið fyrir mig í vikunni. Ég nefnilega lánaði pabba mínum bílinn minn um morguninn án þess að hafa munað eftir því, sem sagt þegar ég var sofandi. Ég hef heyrt um að ganga í svefni, en að lána hluti í svefni...það er alveg nýtt :)

Já ég er komin með ljósmyndavinnu :) segi ekki meir hér, þið verðið bara að spyrja mig þegar þið rekist á mig :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það er nú vel þekkt að tala úr svefni...ég er víst dugleg í því einstaka sinnum svona...hefur mér skilist hjá ýmsum aðilum gegnum tíðina...jafnvel hægt að halda uppi heilum samræðum...meira að segja í gegnum síma...og inní því er örugglega alveg auðveldlega hægt að lána hluti (orðlega allavegana) :P heheheh

Nafnlaus sagði...

Hahahaha
Heyrðu væna, það er nú alveg óþarfi að eyðileggja brandarann minn :P