þriðjudagur, apríl 18, 2006

Gleðilega hátíð

Vonandi höfðuð þið það gott um páskana. Ég hafði það gott og að sjálfsögðu fékk ég góðan mat hjá mömmu. Vorum í bústaðnum okkar og ég bauð vinkonu minni í mat. Hún hefði getað valið humar heima hjá sér en valdi lambalæri hjá okkur, híhí :)

Sin City er alveg rosalega flott tæknilega séð, myndatakan og hljóð er flott, söguþráðurinn settur flott fram en hún er jafnfram ógeðsleg og ofbeldisfull, ég hélt ég myndi bara gráta...svona næstum því. Mæli samt með henni, fyrir þá sem þola ofbeldi. Ég þoli hana allavega takmarkað, viðkvæm sál skilurru :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

alltaf gott að fá góðan mat :)
held reyndar að ég hefði valið humarinn ;) reyndar eflaust þar sem ég hef ekki fengið hann jafn oft og finnst hann ekki jafn algengur og lærið :P
bæb

Nafnlaus sagði...

ég hefði bara tekið humarin með :D og fengið lærið :D Ég fékk líka læri og vá nammi namm ég borðaði 3 diksa UFFFFF