sunnudagur, maí 07, 2006

Sumarið er æði

Jæja, senn líður að síðasta prófi og ég er spennt fyrir því. Hlakka til að komast í smá frí frá lærdómi. Búin að vera dugleg við lestur og ætla rétt að vona að ég nái öllum prófum.

Á föstudaginn fór ég og Jóna saman í keilu, bara við tvær. Held ég hafi aldrei farið með aðeins einum í keilu, það var nú samt gaman, skemmtum okkur við að skoða strákana, allavega ég ;)

Í gær var lært og ég horfði á mynd sem heitir A dirty shame. Mæli ekki með henni....

Það var alveg æðislegur dagur í dag og já ég hefði fengið mér sundsprett í einhverri kaldri á en ég geri það bara seinna, einhver með? :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

því ekki :P

Nafnlaus sagði...

því ég var ekki með sundföt og þar sem ég var í hvítu að ofan þá hefði ég verið of mikil athygli fyrir strákana og það vildi ég nú ekki :P